Góðan daginn og takk fyrir að taka tíma til að lesa þetta CV!
Ég heiti Kristín og er sextán ára og já ég er kannski kannski ung. En ég er fullorðinsleg.
Bæði er ég einbirni en svo er móðir mín einstæð og í vaktavinnu. Ég er því vön að tala við fullorðna og hef sterka ábyrgðartilfinningu og þurft að redda mér.
Mér hefur einnig gengið vel í vinnu þann stutta tíma sem ég hef unnið. (Endilega heyrið í yfirmanni fyrir frekari upplýsingar!).
Ég er fljót að aðlagast nýjum aðstæðum og fljót að læra. Ég hef búið í Svíþjóð meira en hálfa ævina og er með smá sænskan hreim og get stundum sagt eitthvað rangt á íslensku (en fékk þó A í lokaeinkunn í 10.bekk). Pabbi minn er enskur og ég tala því ensku, íslensku og sænsku reiprennandi. Ég lærði líka slóvakísku ung og bjó þar í eitt ár en hef gleymt mestu.
Áhugamál mín eru dýr (sérstaklega kettir), útivist, kristin trú, að ferðast og að lesa bækur. Ég er hrifnust af ævintýrabókum eða eitthvað sem er um baráttu góðs og ills.
Ég er að fara í húsasmíðanám árið 2006 en mig langar að prófa að vinna þangað til, ég er þreytt á að vera í skóla.
Hluti af þessari vinnu fól í sér allskyns sjálfsstyrkingu, við vorum stúlkur í hóp og lærðum td framsögn, samskipti í vinnuhóp, og fengum allskyns ráð í lífsleikni, þetta var í anda Carnegie Hall hugmyndafræðinnar. Mér leiddist þó svolítið þar sem við gerðum mjög lítið verklegt þetta sumar. Við vorum mest í þessum verkefnum. Þess vegna sótti ég um í hinum venjulega vinnuskóla 2025 þótt mér finnist þetta líka hafa verið lærdómsríkt.
Í Svíþjóð (2021-2023) aðstoðaði ég móður mína við pössun á tvíburum nokkur kvöld í mánuði. Þær voru 'yngri en tveggja ára þegar við byrjuðum. Þetta átti að vera gaman, fyrst átti ég bara að koma með, en mamma sá fljótt að að það var ekki hægt að hún passaði ein því þessar tvíburastúlkur gátu alveg hlaupið í sitthvora áttina. Ég fékk því helming launanna og lærði að umgangast og passa börn.